Runólfi Ágústssyni, rektor á Bifröst, hefur sagt starfi sínu lausu, að því er fram kemur í tilkynningu. Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor mun taka tímabundið við starfi rektors frá 1. desember og þar til nýr rektor hefur verið ráðinn.

?Sá ófriður sem ríkt hefur í skólahaldi á Bifröst að undanförnu hefur truflað bæði nemendur og starfsfólk og að auki valdið skólanum sjálfum skaða. Enda þótt spjótum sé beint að mér einum, og nánast eingöngu vegna persónulegra mála en ekki málefna skólans, bitnar þessi aðför einnig á fjölskyldu minni, nánum vinum og samstarfsmönnum,? segir Runólfur í yfirlýsingu.

?Ég hef undanfarin sjö ár gefið þessum skóla allt mitt líf, allan minn tíma og alla mína orku. Einkalíf mitt get ég hins vegar ekki gefið.

Ég hef því tekið ákvörðun um að segja upp starfi mínu sem rektor skólans frá og með 1. desember næstkomandi. Þetta geri ég þrátt fyrir að njóta óskoraðs stuðnings háskólastjórnar til minna starfa, sem og háskólasamfélagsins á Bifröst," segir hann.

"Á fjölmennum fundi í gær tók ég þá djörfu ákvörðun að bera störf mín og hæfi undir atkvæði nemenda og starfsfólks þar sem hátt á þriðja hundrað manns tóku afstöðu. Mikill meirihluti þeirra lýsti yfir stuðningi við mig sem ég met mikils og er þakklátur fyrir. Átökum innan skólans þarf hins vegar að linna tafarlaust svo skólahald geti orðið með eðlilegum hætti.

Ég lít hreykinn um öxl til þeirrar miklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á Bifröst í rektorstíð minni. Ég óska starfsfólki og nemendum skólans velfarnaðar og læt í ljós þá von að Háskólinn á Bifröst eigi eftir að halda áfram að vaxa og dafna um langa framtíð,? segir Runólfur.