Runólfur Þór Sanders hefur hafið störf sem fjármálastjóri S4S ehf. en hann kemur þangað frá Deloitte, þar sem hann hefur verið meðeigandi og stýrt ráðgjöf á sviði kaup, sölu og fjármögnun fyrirtækja. Runólfur hefur starfað á fjármálamarkaði í yfir 15 ár. Hann er viðskiptafræðingur að mennt með MSc gráðu í fjármálum fyrirtækja. Greint er frá ráðningu Runólfs í fréttatilkynningu.

S4S ehf. rekur verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskóinn, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri.. Þá eru í samstæðunni einnig netverslanirnar Skór.is, Ellingsen.is, Air.is, BRP.is og Rafhjólasetur.is. S4S er einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S tæki ehf. sem rekur tækjasölu og verkstæði BRP Ellingsen.

Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S:

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Runólf inn í stjórnendahóp S4S. Félagið hefur vaxið mikið á undanförnum árum og fyrirhugað er að stækka enn frekar, bæði með innri og ytri vexti. Eins höfum við sett stefnuna á að skrá félagið á hlutabréfamarkað innan fárra ára. Reynsla og þekking Runólfs mun nýtast félaginu vel í þessari vegferð."

Runólfur Þór Sanders:

„Það eru spennandi tímar framundan hjá S4S. Ég þekki félagið vel eftir að hafa unnið með þeim sem ráðgjafi undanfarið og hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og sókn félagsins fram á við, ásamt öflugum hópi samstafsfólks."