Fyrirtækið News Corporation, sem er í eigi fjölmiðlamógúlsins Rupert Murdoch, á í leynilegum viðræðum við eigendur Yahoo um hugsanlega yfirtöku News Corp. á Yahoo að sögn fréttavefs BBC.

Að sögn Wall Street Journal eygir Murdoch möguleika á að sameina MySpace, sem er í hans eigu, og Yahoo, en ekki alls fyrir löngu lýst Murdoch yfir að hann hefði engan áhuga á Yahoo.

BBC segir að gangi samningarnir mun News Corp. eignast 20% en Yahoo að öðru leyti halda sjálfstæði sínu.