Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason hefur stofnað félagið RG 19 viðburðir ehf að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu. Skráður tilgangur félagsins er framleiðsla, upptaka og dreifing tónlistar auk tónleikahalds, viðburðir og menningarstarfsemi, fyrirlestrar og framkoma.
Rúrik, sem er 32 ára og lék alla jafna með númerið 19 á bakinu, tilkynnti nýverið að hann hyggist leggja skóna á hilluna og hætta knattspyrnuiðkun. Hann á að baki 53 landsleiki. Sá þekkasti er líklega þegar hann kom inn sem varamaður á gegn Argentínu á HM í Rússlandi árið 2018. Eftir leikinn rigndi yfir hann aðdáandabréfum og öðlaðist hann yfir milljón fylgjendur á Instagram.
Rúrik hefur ýmislegt á prjónunum. Hann vinnur að útgáfu lags og tónlistarmyndbands og hyggst leika í þýskum sjónvarpsþætti og íslenskri bíómynd á næstunni samkvæmt frétt Vísis um málið.