Rússar munu halda áfram viðræðum um lán til handa Íslendingum er haft eftir Alexei Kudrin, fjármálaráðherra Rússlands, í samtali við rússnesku fréttaþjónustuna RIA Novosti í dag.

Í sumum fjölmiðlum hefur því verið haldið fram að Rússar hafi hafnað ósk Íslendinga um lán en Kudrin neitar því.

Eins og áður hefur komið fram þá var rætt um að lánstíminn væri þrjú til fjögur ár og kjörin næmu 30 til 40 punktum ofaná Libor.