Rússar og Indverjar undirbúa nú sendingu á ómönnuðu geimfari til tunglsins. Áætlað er að tunglfarið sem Rússar kalla Luna-Resurs og Indverjar kalla Chandrayaan-2, lendi mjúklega á yfirborði tunglsins á fyrrihluta árs 2013.
Rússar hættu afskiptum af tunglinu á áttunda áratugnum eftir að hafa tapað í kapphlaupinu við Bandaríkjamenn. Rússar náðu þó upphaflega forskotinu í geimferðunum með því að senda fyrsta gerfitunglið Sputnik 1 á loft 4. október árið 1957. Fyrsta ómannaða farið til að lenda á tunglinu var sovéska geimfarið Luna 9 sem lenti þar 3 febrúar 1966.
Bandaríkjamenn náðu loks forskotinu í tunglferðunum á árunum 1969 til 1972 þegar þeir sendu þangað 27 geimfara í 9 Apollo geimförum. Lentu 6 geimför á tunglinu með samtals 12 geimfara um borð og síðasta geimfarið var Appolo 17 sem fór til tunglsins 7. til 19. desember 1972. Flugtíminn til tunglsins var um 66 klukkustundir.
Með þessu fyrirhugaða geimskoti 2013 hyggjast Rússar og Indverjar reyna að skáka Kínverjum sem hyggjast senda geimfar til tunglsins á svipuðum tíma. Þá hafa Japanir líka tekið þátt í nýju kapphlaupi um tunglferðir og sendu þangað geimfar 2007 sem hringsólaði um tunglið og tók háskerpumyndir af yfirborðinu.
Ætlun Rússa og Indverja miðar m.a. að því að komast í snertingu við vatn sem bundið sé í ís á tunglinu. Ef það tekst gæti það markað þáttaskil í mögulegri uppbyggingu mannaðra stöðva á tunglinu.