Rússland hefur veitt Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra til að efla gjaldeyrisforða landsins. Sendiherra Rússlands á Íslandi, Victor I. Tatarintsev, tilkynnti formanni bankastjórnar Seðlabankans þetta í morgun, samkvæmt tilkynningu bankans.

Lánið mun verða til 3 - 4 ára á kjörum sum munu verða á bilinu 30 – 50 punktum yfir Libor-vöxtum.  Putin forsætisráðherra Rússlands hefur staðfest þessa ákvörðun.   Forsætisráðherra Íslands hóf athugun á möguleikum á slíkri lánafyrirgreiðslu á miðju sumri. Sérfræðingar Seðlabanka og stjórnarráðsins munu halda til Moskvu mjög fljótlega.   Lánafyrirgreiðsla af þessu tagi mun treysta mjög gjaldeyrisforða Íslands og styrkja grundvöll íslensku krónunnar, að því er segir í tilkynningunni.