Mikilvægi Rússlandsmarkaðar í rekstri HB Granda hefur aukist verulega á undanförnum árum. Árið 2014  stöfuðu til að mynda um 17% tekna félagsins frá viðskiptum við rússneska aðila. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu til kauphallar.

Þar segir að staðgengismarkaðir fyrir helstu afurðir sem seldar eru til Rússlands séu ekki til staðar. Það blasi því við að muni innflutningsbann Rússlands ná til innfluttra sjávarafurða frá Íslandi muni töluverður hluti þess afla félagsins sem unninn sé í frystar afurðir á Rússlandsmarkað verði unnin í mjöl og lýsi. Við það muni vinnan við aflann minnka og störfum við vinnsluna fækka svo um muni auk þess sem verðmæti aflans lækki töluvert.

„Erfitt er að meta fjárhagsleg áhrif þessa á HB Granda en gróflega áætlað munu tekjur félagsins lækka um u.þ.b. 10-15 milljónir evra á ársgrundvelli. Árið 2014 námu tekjur félagsins 215 milljónum evra. Félagið á nú um 6 milljónir evra í útistandandi kröfum í Rússlandi,“ segir í tilkynningunni.

Gengi hlutabréfa í HB Granda hefur lækkað um 0,88% það sem af er degi.