Neptune ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta í upphafi ársins, rúmlega áratug eftir stofnun þess. Félagið gerði út tvö rannsóknaskip frá Akureyri sem sinntu ýmsum botnrannsóknaverkefnum, meðal annars olíuleit og rannsóknum fyrir vindmyllugarða og lagningu gasleiðslu.
Staða félagsins hafði lengi verið erfið. Til hafði staðið að eigendur félagsins legðu því til aukið hlutafé, en þegar upp var staðið varð ekkert af því. Félagið á sér rúmlega áratugslanga sögu sem er um margt áhugaverð.
Eignarhald á Kýpur eftir gjaldþrot Magnúsar
Neptune var stofnað af Magnúsi Þorsteinssyni fjárfesti árið 2008. Magnús var hluti af Samsonhópnum svokallaða, sem samanstóð af Björgólfsfeðgum og Magnúsi. Hópurinn keypti ráðandi hlut í Landsbankanum árið 2002, eftir að hafa efnast á viðskiptum í Rússlandi á 10. áratugnum.
Í október 2008 eignaðist Neptune Helgu Björgu og Harðbak – gamla togara sem voru smíðaðir á 8. áratugnum – og lét breyta þeim í rannsóknaskipin Neptune EA-41 og Poseidon EA-303 fyrir hundruð milljóna. Fyrsta verkefni skipanna voru botnrannsóknir í tengslum við lagningu gasleiðslu fyrir fjársterkt rússneskt fyrirtæki.
Árið 2009 var Magnús úrskurðaður gjaldþrota á Íslandi, eftir að hafa flutt lögheimili sitt til Rússlands þá um vorið, og þar er hann sagður hafa stundað viðskipti æ síðan, sem lítið er vitað um.
Í kjölfar gjaldþrots Magnúsar eignaðist félagið Sea Investment Ltd., sem er skráð á Kýpur, 85% hlut í Neptune. Viðskiptablaðið hefur hins vegar heimildir fyrir því að félög tengd Magnúsi hafi verið á ferð, svo í raun breyttist eignarhaldið lítið.
Bankinn fór fram á nauðgungauppboð
Undir lok árs 2017 var félagið komið í erfiða stöðu eftir að markaðsaðstæður versnuðu, og Landsbankinn fór fram á nauðungaruppboð á skipum þess upp í tæplega 100 milljóna króna skuld. Um svipað leyti kom rússneskur fjárfestir að nafni Sergei Bedash, sem sagður var tengdur vísindasamfélaginu, inn í félagið sem stjórnarformaður, og honum átti að fylgja nýtt fjármagn sem myndi bjarga félaginu. Féð kom hins vegar aldrei, og félagið var sem fyrr segir úrskurðað gjaldþrota nú í ársbyrjun.
Heimildir herma að fleiri félög tengd Magnúsi Þorsteinssyni og Neptune, að minnsta kosti eitt í Færeyjum og eitt í Bretlandi, hafi einnig farið í þrot, og að enn annað félag honum tengt hafi keypt skrifstofubyggingu Neptune á síðasta ári. Skipin tvö fylgdu hins vegar félaginu til endaloka þess, og eru nú í umsjá þrotabúsins, en viðvarandi vanræksla viðhalds sökum fjárskorts hefur leikið þau grátt.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .