Rússneski auðmaðurinn Roman Abramovich mun koma til Íslands í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta á morgun, fimmtudaginn 19. október, segir í fréttatilkynningu.

Forseti hefur boðið hingað til lands rússneskum ríkisstjórum og kynna fyrir þeim málefni tengd nýtingu jarðhita, fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða, félagslegri þjónustu og ferðamálum á Íslandi.

Ríkisstjórarnir eru Kamil Iskhakov, sérlegur fulltrúi Vladimirs Pútín forseta Rússlands í austurhéruðum Rússlands, og Roman Abramovich ríkisstjóri í Chukotka í austanverðri Síberíu. Með þeim í för er sendinefnd embættismanna.

Kamil Iskhakov er einn af sjö sérstökum fulltrúum forseta Rússlands og skipaður yfir allmörg héruð í austanverðu Rússlandi. Þessir sérstöku fulltrúar Rússlandsforseta hafa yfirumsjón með efnahagslífi, félagslegum umbótum, atvinnulífi og þróun þessara héraða.

Í tilkynningunni segir að í austanverðu Rússlandi er að finna umtalsverðan nýtanlegan jarðhita og gjöful fiskimið. Á undanförnum árum hafa ýmis íslensk fyrirtæki unnið að verkefnum á þessum svæðum eða kannað möguleika á þátttöku í atvinnuuppbyggingu þar.

Ríkisstjórarnir munu meðal annars heimsækja höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur og orkuverið á Nesjavöllum, verkfræðistofuna Hnit, fiskvinnsluna Vísi, Saltfisksetrið, fiskeldið Stað, skóla og íþróttamannvirki í Grindavík og kynna sér starfsemi Bláa lónsins.