Rut Gunnarsdóttir hefur verið ráðin regluvörður Íslandsbanka og mun hefja störf um næstu mánaðamót. Tekur hún við starfinu af Kristni Arnari Stefánssyni sem lætur af störfum að eigin ósk. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Rut hefur gegnt starfi staðgengils regluvarðar bankans frá 2010. Hún starfaði áður hjá Fjármálaeftirlitinu í 8 ár á sviði verðbréfa-, lífeyrissjóða- og vátryggingaeftirlits.

Rut útskrifaðist með cand.jur úr Lagadeild Háskóla Íslands árið 2000 og öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi árið 2003. Hún lauk MBA námi frá UIBS, Barcelona árið 2007 með fjárfestingabankastarfsemi sem sérsvið og einnig lauk hún prófi í verðbréfaviðskiptum 2008.

„Við óskum Rut til hamingju með nýtt hlutverk og hlökkum til að starfa með henni í framtíðinni. Kristinn hefur átt farsælan starfsferil í bankanum. Á þeim tíma voru erfið tímabil þar sem áskoranir voru margar við uppbyggingu bankans. Um leið og ég óska honum velfarnaðar í framtíðinni vil ég persónulega þakka fyrir okkar góða samstarf í gegnum árin,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.