Rut Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá Arctica Finance en hún greinir frá þessu á LinkedIn síðu sinni . „Nýr dagur, nýir tímar og þið vitið... nýjar áskoranir,“ skrifar Rut.

Rut starfaði fyrir hjá Arion banka sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta frá árinu 2019. Þar áður var hún fjármálaráðgjafi hjá Deloitte í rúmlega tvö og hálft ár. Rut útskrifaðist með BA gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Hún spilaði lengi vel knattspyrnu í meistaraflokki með Fylki, ÍBV, Haukum og Víkingum í efstu tveimur deildum hér á landi.