Fréttastofa RÚV hefur beðist velvirðingar á að hafa ranglega tengt aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins, Múr- og málningarþjónustuna, við brotastarfsemi í atvinnurekstri.

„Í sjónvarpsþættinum Kveik sem sýndur er á RÚV og fjallaði um slæman aðbúnað og kjör erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði voru birtar myndir frá starfsemi Múr- og málningarþjónustunnar og í fréttum í kjölfar þáttarins var merki fyrirtækisins sýnt. Fyrirtækið andmælti að vera tengt með þessum hætti við brot á erlendu launafólki og baðst fréttastofa RÚV velvirðingar á þeim mistökum," segir í frétt á vef Samtaka atvinnulífsins.

Jafnframt segir að umfjöllun fjölmiðla um stöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði sé mikilvæg og veiti atvinnurekendum aðhald. Það verði aftur á móti að gera þá kröfu að umfjöllun sé málefnaleg og einstök fyrirtæki ekki tengd brotastarfsemi nema sýnt hafi verið fram á brot þeirra.