„Framlagið samsvarar innheimtu útvarpsgjalds, að því gefnu að Ríkisútvarpið standi við þá fjárhagslegu endurskipulagningu sem það hefur boðað,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, í samtali við Morgunblaðið . Segir hún að sú breyting verði gerð á fjárlögum, vegna bættrar stöðu í ríkisfjármálum, að Ríkisútvarpið fái allt útvarpsgjaldið á næsta ári til rekstrarins.

Vigdís segir ráðherranefnd um ríkisfjármál muni fara yfir það hvort Ríkisútvarpið standi við boðaðan niðurskurð samhliða því að standa við lögboðið hlutverk sitt. Framlagið til Ríkisútvarpsins mun aukast um 400 milljónir króna, úr tæpum 3,5 milljörðum í rúma 3,9 milljarða króna.