Stöðugildum á Ríkisútvarpinu verður fækkað um 20 vegna halla á rekstri félagsins. Páll Magnússon útvarpsstjóri skýrði frá þessu á starfsmannafundi í dag.

8 starfsmönnum verður sagt upp störfum, ekki verður endurráðið í 8 önnur störf og þá verða ekki ráðnir afleysingarstarfsmenn í 4 stöður.

Þetta kemur fram á vef RÚV.