Ríkisútvarpið (RÚV) hefur ákveðið að draga til baka áform um að leggja af svæðisbundnar fréttasendingar frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV en þar segir að síðustu daga hafa fjölmargir hollvinir svæðissendinganna hvatt til þess að ekki verði gripið til þessara sparnaðaraðgerða þrátt fyrir erfiða rekstrarstöðu Ríkisútvarpsins.

„Ljóst er að hlustendur á landsbyggðinni telja svæðissendingarnar veigamikinn þátt í þjónustu RÚV,“ segir í tilkynningunni.

RÚV segir þetta hafa endurspeglast í vaxandi auglýsingatekjum á svæðisstöðvunum að undanförnu þrátt fyrir almennan samdrátt í sölu auglýsinga.

Þannig hafi fjölmargir viðskiptavinir á landsbyggðinni hafa haft samband síðustu daga og lýst yfir miklum vonbrigðum með að missa þann mikilvæga auglýsingamiðil sem svæðisstöðvarnar eru.

Í framhaldinu hefur farið fram endurmat á tekjuáætlunum á svæðisstöðvunum og er niðurstaðan að væntanlegar tekjur muni duga til að halda útsendingunum áfram, segir í tilkynningunni.

„Það er Ríkisútvarpinu hvatning á erfiðum tímum að finna fyrir þessum stuðningi hlustenda“, segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri í tilkynningunni.