Sýndarveruleikastúdíóið RVX hefur gert samning við Advania um hýsingu í gagnaverum Advania á Íslandi, á ofurtölvubúnaði (HPC) félagsins. Lausnirnar notar RVX við framleiðslu á tækni- og myndbrellum fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti, leiki og sýndarveruleika. RVX hefur unnið slík verkefni fyrir fjölda þekktra stórmynda á borð við Everest, Gravity, Tinker Tailor Soldier Spy, 2 Guns, Contraband og Australia en fyrirtækið vann einnig að sýndarveruleikaupplifuninni Everest VR. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Með samningnum fær RVX aðgang að upplýsingatæknisérfræðingum sem hafa mikla reynslu af rekstri og nýtingu ofurtölva (HPC) ásamt því að hafa aðgang að auknu tölvuafli ef þörf krefur í gegnum nýja ofurtölvuþjónustu Advania (HPCaaS).
Örugg og sveigjanleg hýsing Gagnaver Advania eru vottuð ISO stöðlum, uppfylla ítrustu öryggiskröfur sem gerðar eru til gagnavera sem hýsa dýrmæt gögn, og eru hönnuð og byggð með hámarks rekstratröryggi að leiðarljósi,“ er tekið fram þar.

„Við erum líklega að framleiða umhverfisvænustu tæknibrellur í heimi,” segir Benjamin Bohn, framkvæmdastjóri RVX. „Rekstraröryggi hýsingar skiptir höfuðmáli í rekstri okkar og var því ein af lykilforsendunum þegar kom að því að velja þjónustuaðila. Við völdum Advania vegna áreiðanleikans sem fyrirtækið tryggir og sérfræðiþekkingarinnar sem býr í starfsfólki fyrirtækisins.“

„Advania hefur á síðustu árum byggt upp öfluga starfsemi í kringum rekstur gagnvera með þá sýn að standast kröfur sem alþjóðamarkaðir og -fyrirtæki gera til hýsingarumhverfa, sem við gerum svo sannarlega í dag“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. „Við erum stolt af reynslumiklum sérfræðingum okkar og getu þeirra til að styðja við rekstur aðila sem gera miklar kröfur á borð við RVX“.