Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur gert samning við veðmálasíðuna 888.com sem felur í sér að gestir á vefsíðu Ryanair geti þar stundað veðmál og reynt að vinna sér inn flugmiða með flugfélaginu.

Ekki er ljóst af fréttum hvort einnig verði hægt að spila upp á og fyrir beinharða peninga.

Samningurinn er bæði hugsaður sem þáttur í markaðssetningu Ryanair og til að draga gesti að vefsíðunni, en einnig til að auka tekjur fyrirtækisins. Gestir á vefsíðu Ryanair voru í fyrra um hálfur milljarður.