Nýlegir bílaleigubílar verða í boði með allt að 1.900 þús. kr. afslætti frá markaðsverði, á rýmingarsölu bílaleigunnar Thrifty, sem hefst í fyrramálið. Algengur afsláttur á smærri og meðalstórum bílum verður á bilinu 400 til 800 þús. kr. segir í tilkynningu.

Á haustin rýma bílaleigur jafnan til hjá sér fyrir veturinn sem framundan er og setur tímabundið framboð á bílaleigubílum sterkan svip á bílamarkaðinn um þetta leyti árs. Bílaleigan Thrifty hóf starfsemi hér á landi í vor sem leið.

Það safn sem bílaleigan þarf að losa er með fjölbreyttara móti og spannar fullvaxna jeppa, smærri borgarbíla og allt þar á milli. Rýmingarsala Thrifty fer fram á Bíldshöfða 6 í samstarfi við Brimborg.