Hagnaður Eikar lækkar úr 3 milljörðum króna árið 2019 í 720 milljónir króna á síðasta ári. Félagið segir heimsfaraldurinn hafa rýrt rekstrarhagnað félagsins fyrir afskriftir ( EBITDA ) um 655 milljónir króna. Þar af nam virðisrýrnun viðskiptakrafna 375 milljónum króna og afkoma Hótel 1919 var 230 milljónum lakari en búist var við en samdráttur í útleigu nam 50 milljónum króna.

Þá endurfjármagnaði Eik skuldir fyrir rúmlega 21 milljarð á árinu og námu vegnir verðtryggðir vextir félagsins 3,15% í árslok og óverðtryggðir 2,91%. Vaxtakjör félagsins hafa aldrei verið betri.

Leigutekjur námu 8,34 milljörðum 2020 miðað við á 8,66 milljarðar árið 2019. Þá nam rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 5 milljörðum miðaða við um 5,6 milljarðar 2019.

Matsbreyting fjárfestingaeigna hækkaði um 594 milljónir króna, sem samsvarar 2,9% raunlækkun. Stærstu liðir sem leiddu til lækkunar voru lægra virði hótela, lægra útleiguhlutfall og lækkun á markaðsvirði.

Eigið fé Eikar í árslok nam 33 milljörðum króna, eignir 106 milljörðum og skuldir 73 milljörðum króna.