Það vekur upp spurningar þegar ekki tekst að fá starfsfólk í laus störf þó svo margir í viðkomandi starfsgrein séu skráðir atvinnulausir og þiggi atvinnuleysisbætur. Því má velta fyrir sér hvort brotalöm sé í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar, sem á að þjóna bæði atvinnulausum og atvinnurekendum.

Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins (SA) í dag en samtökin segja að nú þegar álögur á atvinnulífið vegna atvinnuleysis hafa þrefaldast með hækkun atvinnutryggingagjalds úr 0,65% í 2,21% aukist kröfur um að vel sé haldið á fjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs.

„Vaxandi kröfur eru gerðar til þess að fólk þiggi ekki atvinnuleysisbætur á sama tíma og laus störf eru í boði sem það getur unnið,“ segir á vef SA en þar kemur jafnframt fram að töluvert sé kvartað yfir því í atvinnulífinu að illa gangi að manna sum störf ófaglærðra, t.d. á hótelum.

Samtökin segja að þeir sem annað hvort hafna starfi sem í boði er, eða mæti ekki í boðað viðtal eigi að falla af bótum þar sem þeir uppfylli ekki lengur skilyrðið um að vera umsækjandi um vinnu.

Skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur er að viðkomandi sé jafnframt umsækjandi um starf.  Samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar varðar það bótamissi að hafna starfi sem býðst með sannanlegum hætti.

„Á vef Vinnumálastofnunar er langur listi yfir störf í boði, sem ekki virðist hægt að manna þrátt fyrir mikið atvinnuleysi,“ segir á vef SA.

„Það er ekki nægilegt að útbúa lista yfir laus störf og benda á að þeir sem hafi áhuga skuli hafa samband við fyrirtækið. Vinnumiðlunin verður að hlutast til um að manna störfin eða fella fólk af bótum að öðrum kosti. Atvinnuleysisbætur eru ætlaðar þeim sem eru tímabundið án vinnu en eru ekki valkostur þeirra sem ekki hafa áhuga á vinnu.“

Sjá nánar á vef SA.