Samtök atvinnulífsins þurfa samkvæmt reglum sem tóku gildi frá janúar síðastliðnum að óska með áberandi hætti eftir því að hæfir einstaklingar sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða aðildarsamtökum SA, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða.

Skipa samtökin helming stjórnarmanna í sjö lífeyrissjóðum, það er í lífeyrissjóðunum Birtu, Festu, Gildi og Stapa ásamt lífeyrissjóði Rangæinga, verzlunarmanna og Vestmannaeyja að því er fram kemur í frétt samtakanna.

„Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu m.a. á lífeyrismálum, stjórnun, stefnumótun, áætlanagerð og reikningshaldi, lögfræðilegum málefnum og fjármálamarkaði," segir í fréttinni .

„Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn.

Sérstök hæfisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Nefndin leggur mat á þekkingu og reynslu umsækjenda með hliðsjón af þeim eiginleikum sem nauðsynlegt er að viðkomandi stjórn sem heild búi yfir.

Að mati loknu leggur hæfisnefndin tillögu fyrir framkvæmdastjórn SA.“