Samtök atvinnulífsins ætla að tilgreina hversu mikið er greitt í tryggingagjald á launaseðlum starfsmanna sinna og hvetja aðra vinnuveitendur til þess að gera slíkt hið sama.
Á vef SA segir að árið 2017 hafi vinnuveitendur greitt 685.607 krónur í tryggingagjald með hverjum fullvinnandi starfsmanni með áætluð meðalheildarlaun á almennum vinnumarkaði.
Það samsvarar því að tryggingagjald fyrirtækis með 14 starfsmenn sé jafnhátt og að vera með 15 starfsmanninn á launaskrá. Áætlað er að ríkissjóður fái 100 milljarða króna í ríkiskassann á þessu ári af tryggingagjöld.
SA segja brýnt að auka skattavitund og vitund um þann kostnað sem hlýst af atvinnurekstri á Íslandi. Tryggingagjaldið er launatengt gjald sem atvinnurekendum ber að standa skil á vegna launakostnaðar. Það kemur til viðbótar við laun, greiðslur í lífeyrissjóð og annan launakostnað.
Gjaldið var hækkað tímabundið árin 2009 og 2010 til að mæta tekjutapi ríkissjóðs í kjölfar efnahagskreppunnar og til að mæta auknu atvinnuleysi. „Síðan hafa forsendur breyst og atvinnuleysi minnkað. Gjaldið er því nú nýtt til annarra og óskyldra útgjalda ríkissjóðs og því löngu tímabært að það lækki,“ segir á vef SA.
Þá segir ennfremur að lækkun tryggingagjaldsins sé mikilvægur liður í að bæta samkeppnisstöðu fyrirtækja og gera þeim kleift að mæta kröfum vinnumarkaðarins um launahækkanir sem og auknu framlagi í lífeyrissjóði.