Samtök Atvinnulífsins (SA) segja að auðvelda þurfi íslenskum fyrirtækjum að afla sér verkefna erlendis. SA leggja til að í lög um tekjuskatt verði tekin inn sambærileg ákvæði og gilda á Norðurlöndunum um skattaívilnun fyrir menn sem starfa að verkefnum erlendis í sex mánuði eða lengur. Í dag er frádráttur af þessu tagi ekki leyfður.

„Þar [erlendis] keppa fyrirtækin við starfsmenn fyrirtækja með heimilisfesti í ríkjum sem flest hver hafa sett lög sem við uppgjör tekjuskatts leyfa að innlendur skattur af erlendu tekjunum sé dregin frá heildarskattinum. Með öðrum orðum þá greiðir starfsmaðurinn ekki tekjuskatt í heimalandinu af erlendu tekjunum en á móti eru launin oftast lægri erlendis þar sem um er að ræða lönd utan Evrópu og N-Ameríku.

Fyrir vikið geta fyrirtækin tryggt að starfsmenn fái ekki lægri útborguð laun en áður sem eykur samkeppnishæfni þeirra. Allir hagnast á þessu fyrirkomulagi; starfsmaðurinn eykur tekjur sínar, fyrirtækið verður samkeppnisfært með eigin starfsmenn og ríkið sparar bótagreiðslur.

Hér á landi er slíkur frádráttur ekki leyfður. Þetta veldur fyrirtækjunum erfiðleikum vegna þess að þau vildu auðvitað frekar eiga kost á að bjóða starfsfólki áframhaldandi starf. Til að komast inn í þetta kerfi eru starfsmennirnir því oft nauðbeygðir að bregða búi og flytja erlendis sem í mörgum tilvikum er ógerlegt þegar um fjölskyldumenn er að ræða.“

Í frétt SA segir að ákvæði sambærilegt því og er í lögum Norðurlandanna sé ætlað að hvetja menn og fyrirtæki til að leita sér verkefna erlendis án þess að eiga á hættu að verða tvískattlagðir.

„Þannig eigi maður sem ber fulla og ótakmarkaða skattskyldu hér á landi en aflar tekna vegna vinnu erlendis samfellt í sex mánuði eða lengri tíma rétt á því að heildartekjuskattur hans sé lækkaður um þá skattfjárhæð sem reiknast af hinum erlendu tekjum. Dvelji maður erlendis við störf lengur en í tólf mánuði haldi hann rétti sínum til lækkunar á tekjuskatti af hinum erlendum tekjum jafnvel þótt launin sæti ekki skattlagningu í vinnulandinu ef skattundanþágan byggist á lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum í vinnulandinu.“

SA telja að breytingarnar myndu tvímælalaust auðvelda íslenskum fyrirtækjum sem taka að sér framkvæmdir erlendis að hafa með sér Íslendinga að heima og stuðla að fækkun byggingamanna á atvinnuleysisskrá.