Samtök atvinnulífsins fagna í tilkynningu samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. „Með samkomulaginu hefur sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi. Sérstaklega mun þetta gefa HS Orku tækifæri til að halda áfram á fullum krafti  uppbyggingu Reykjanesvirkjunar ásamt frekari rannsóknum á svæðinu."

Þá segir að Magma Energy hafi jafnframt lýst því yfir að starfsemin hér  á landi verði rekin með langtímahagsmuni allra hlutaðaeigandi að leiðarljósi. „Fjárfesting þessi er mikilvæg í ljósi mikils atvinnuleysis og hægagangs við stórar fjárfestingar að undanförnu. Með henni er vonast til að framkvæmdir til nýtingar orkunnar geti einnig öðlast byr undir báða vængi." segir í tilkynningu frá SA.