Stjórn SA áréttaði fullum stuðningi samtakanna við Íslandshótel á fundi í gær „vegna þeirra fordæmalausu verkfallsaðgerða sem Efling beinir nú að fyrirtækinu“, eins og segir í tilkynningu á vef SA.

„Engin rök hafa verið færð fyrir því af hverju Efling beinir spjótum sínum einungis að einum rekstraaðila í ferðaþjónustu og ætlist til að 280 Eflingarfélagar leggi einir niður störf til að ná fram kjarasamningi fyrir 21 þúsund félaga Eflingar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Stuðningur SA feli m.a. í sér að vinnudeilusjóði samtakanna verði heimilt að greiða Íslandshótelum allt tjón sem af vinnustöðvun hlýst, komi hún til framkvæmda. Eignir vinnudeilusjóðs SA séu um fimm milljarðar króna og sjóðurinn sé meðal annars hugsaður til að bregðast við skæruverkföllum og ef gripið sé til ómálefnalegra aðgerða gegn aðildarfyrirtækjum samtakanna.

„Samtök atvinnulífsins fordæma að aðgerðir Eflingar eigi að beinast gegn einu fyrirtæki. Það sé í andstöðu við anda viðtekinna leikreglna á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins hafa þegar undirritað kjarasamninga við 18 aðildarfélög SGS, VR, LÍV, stéttarfélög iðn- og tæknifólks auk fjölda annarra stéttarfélaga með samtals yfir 90 þúsund félagsmenn. Samningarnir hafa að jafnaði verið samþykktir með 85% greiddra atkvæða og þannig markað launastefnu til næstu 15 mánaða sem Samtök atvinnulífsins geta ekki og munu ekki hvika frá,“ segir að lokum í tilkynningu SA.