Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur stjórnvöld til að lækka vexti, m.a. í ljósi þess að vextir lækka hvarvetna í löndum heims og vaxtamunur gagnvart útlöndum eykst.

Ályktun þessa efnis var samþykkt á stjórnarfundi SA í dag.

Í henni segir að það sé vandséð  hvaða markmiðum hinum háu vöxtum sé ætlað að ná við ríkjandi aðstæður takmarkana á fjármagnsviðskiptum við útlönd.

„Stjórnin hvetur ríkisstjórnina og Seðlabankann til þess að afnema nýsettar reglur um gjaldeyrishömlur. Þá hvetur stjórn SA Alþingi til þess að gæta ráðdeildar í ákvörðunum sínum um fjárlög næsta árs og draga eins mikið úr fyrirsjáanlegum fjárlagahalla og frekast er unnt við núverandi aðstæður."