Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (SA) í gærkvöldi var ákveðið að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skyldu framlengdir til nóvemberloka 2010.

Þetta kemur fram á vef SA en samtökin segjast hins vegar ekki geta fallist á ákveðin atriði í fyrirliggjandi drögum að yfirlýsingu forsætis- og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, um framgang stöðugleikasáttmálans.

Þannig sé ágreiningur í skattamálum og hefur verið óskað eftir áframhaldandi viðræðum við ríkisstjórnina um þau. SA leggja áherslu á að þær viðræður hefjist sem allra fyrst.