Arnar Scheving Thorsteinsson var tekjuhæstur meðal starfsmanna fjármálafyrirtækja hér á landi í fyrra og námu tekjur hans að jafnaði tæplega 9,6 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Næst tekjuhæstur á meðal starfsmanna fjármálafyrirtækja var Sigurður Atli Jónsson, stjórnarformaður ILTA Investments og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, en mánaðartekjur hans námu að jafnaði 8,6 milljónum á mánuði.
Fimm tekjuhæstu starfsmenn fjármálafyrirtækja árið 2018:
- Arnar Scheving Thorsteinsson, fjármstj. 9,6 milljónir
- Sigurður Atli Jónsson, stj.form. ILTA Investm. 8,6 milljónir
- Snorri Arnar Viðarsson, skilanefnd Glitnis. 7,4 milljónir
- Hilmar Þór Kristinsson, fjárf., fv. skilan. Kaupþings 6,2 milljónir
- Höskuldur H. Ólafsson, fv. bankastj. Arion 5,8 milljónir
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .