Samtök atvinnulífsins munu leggja fram tillögur sínar varðandi framlengingu kjarasamninga á blaðamannafundi nú fyrir hádegi. Þar verður einnig kynnt ný atvinnustefna til næstu missera sem miða að því aðlágmarka skaða og auðvelda nýja uppbyggingu.   Þór Sigfússon, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA kynna tillögurnar og svara spurningum, en fundurinn verður á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins Borgartúni 35 og hefst klukkan 11.