Fultrúar Samtaka atvinnulífsins og ASÍ gengu um helgina frá plaggi með sameiginlegum hugmyndum vegna endurskoðunar kjarasamninga, sem hefur aukið líkurnar á að unnt verði að ná samkomulagi á almennum vinnumarkaði á næstu dögum. Stjórn SA féllst í gær á meginatriði hugmyndanna en það ræðst af undirtektum á fundum aðildarfélaga ASÍ í dag og á næstu dögum hvort gengið verið frá samkomulagi á þessum grunni.

Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Meðal annars fellst SA á frekari styttingu samningstímans þannig að núgildandi samningar gildi til 30. nóvember. Jafnframt er gert ráð fyrir að þegar í stað verði hafin vinna við undirbúning að næstu kjarasamningum, að markvisst verði unnið að því að halda verðbólgu í skefjum og reynt verði að ná samstöðu um meginþætti atvinnustefnu til að glæða hagvöxt.