Samtök atvinnulífsins telja að örlög íslensks atvinnu- og efnahagslífs séu fyrst og fremst í höndum Íslendinga sjálfra. Aðgerðir eða aðgerðaleysi ráði því hvernig til takist að komast út úr kreppunni í kjölfar bankahrunsins í október 2008.

„Samtök atvinnulífsins leita því eftir samstöðu með öllum ábyrgum aðilum sem hafa metnað fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til þess að ná viðsnúningi strax þannig að endurheimta megi fulla atvinnu og fyrri lífskjör eigi síðar en á árinu 2015. Í ljósi alvarlegrar stöðu atvinnumála efna Samtök atvinnulífsins til opins fundar föstudaginn 12. mars um stöðuna og horfurnar framundan. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00," segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnir stefnumörkun samtakanna Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins en auk hans flytja erindi  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir.