„Það er því sjálfgefið að Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvæði að neinum frekari samskiptum við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur," sagði Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, við setningu hádegisfundar í Hörpu í dag um þróun atvinnulífsins.

Vilmundur sagðist lengi hafa stundað viðskipti og aldrei vanist öðru en því að menn standi við samninga og þá oftast gilt einu hvort þeir væru skriflegir eða munnlegir. Menn vilji ekki að það spyrjist út að þeir séu ómerkingar og ekki sé unnt að treysta orðum þeirra.

Reynt að fá ríkisstjórnina til samstarfs

„Frá því að núverandi ríkisstjórn var mynduð hafa Samtök atvinnulífsins reynt að fá hana til samstarfs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi, fjölga störfum, auka fjárfestingar, efla hagvöxt og bæta lífskjörin í landinu. Þetta eru sameiginlegir hagsmunir allra landsmanna og hafa að auki þau áhrif að bæta afkomu ríkissjóðs," sagði Vilmundur.

Hann sagði að ekki þyrfti að rekja þá sögu sem hófst með stöðugleikasáttmálanum í júní 2009, yfirlýsingum ríkisstjórnar undir lok þess árs og hélt svo áfram með yfirlýsingum um sátt í sjávarútvegsmálum og lauk með sérstakri skriflegri margra blaðsíðna yfirlýsingu sem gefin var út í tengslum við fyrrnefnda kjarasamninga í maí síðastliðnum.

Treysta ekki orðum ríkisstjórnarinnar

„Því miður hefur ríkisstjórn hvorki sýnt vilja né getu til að fylgja eftir og efna eigin yfirlýsingar. Samtök atvinnulífsins geta ekki treyst orðum hennar né skriflegum yfirlýsingum enda virðist þar allt á sömu bókina lært. Orð án athafna," sagði Vilmundur. „Það er því sjálfgefið að Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvæði að neinum frekari samskiptum við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur."