Ef laun á vinnumarkaði hækka jafn mikið og laun lækna næstu þrjú árin mun það valda mikilli verðbólgu, gengislækkun krónunnar og verulegri hækkun verðtryggðra skulda. Uppsöfnuð verðbólga á tímabilinu yrði 27% og verðtryggð lán heimilanna myndu hækka um 500 milljarða króna. Kaupmáttur launa myndi aðeins aukast um 2%.

Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Samtaka atvinnulífsins þar sem metin eru áhrif þess að laun á vinnumarkaði hækki til samræmis við kjarasamninga lækna.

„Aðeins er litið til kaupmáttar launa en ekki ráðstöfunartekna. Mikilli verðbólgu samhliða miklum launahækkunum fylgir mikil hækkun verðbóta og vaxta og myndi almenningur því hafa minna á milli handanna ef þessi leið verður farin,“ segir í frétt á vef samtakanna .

Í greiningunni er önnur sviðsmynd einnig skoðuð:

„Ef laun hækka um 3,5% á ári næstu þrjú árin myndi uppsöfnuð verðbólga á tímabilinu verða 7% og kaupmáttur launa aukast um 4%. Kaupmáttaraukningin yrði því helmingi meiri ef þessi leið væri farin, auk þess sem verðtryggð lán heimilanna myndu hækka mun minna, um 120 milljarða í stað 500 milljarða. Reikningurinn sem yrði sendur heimilum landsins í formi verðbóta ef fyrri leiðin verður farin nemur 380 milljörðum króna.“