Samtök atvinnulífsins (SA)hafa stofnað vinnuhóp til að fylgjast með afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir atvinnulífið í landinu.

Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum allra aðildarsamtaka SA og fulltrúa Viðskiptaráðs Íslands.

Þetta kemur fram á vef SA.

Þar kemur fram að safnað verður saman upplýsingum um áhrif á fyrirtæki, vandamál sem upp koma og hvernig unnt er að bregðast við þeim.

„Samtökin munu koma upplýsingum á framfæri við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og gæta þannig hagsmuna fyrirtækjanna,“ segir á vef SA.

„Mjög mikilvægt er að fyrirtæki láti Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra fylgjast með því hvernig gengur að standast það álag sem ástandið hefur fyrir nánast allt atvinnulíf í landinu,“ segir þar jafnframt.

Þá segir SA að mikilvægasta verkefni stjórnvalda nú sé að koma fjármagnsflæði í landinu í eðlilegt horf þannig að fyrirtæki hafi nauðsynlegan aðgang að rekstrarfé og búa þannig um hnútana að stöðugleiki komist á sem fyrst - bæði í gengis- og verðlagsmálum og að vextir lækki sem allra fyrst.

Umsjón með verkefninu af hálfu SA hafa Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur og Pétur Reimarsson, forstöðumaður.