Mikilvægt er að samið verði til skamms tíma, segir Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Samtökin kynna í dag áherslur sínar fyrir komandi kjarasamninga í haust.
Björgólfur segir að Samtök atvinnulífsins séu í vinnu með öðrum að skoða þá aðferðafræði sem beitt er í kjaraviðræðum á Norðurlöndum. Björgólfur segir að samtökin þurfi tíma fyrir nýja nálgun i kjarasamningaviðræðum. Mikilvægt sé að horfa á aðra þætti en beinar launahækkanir. „Markmiðið er að ná til lengri tima alvöru stöðugleika, lægri verðbolgu og lægri vöxtum,“ segir Björgólfur.
Björgólfur nefndi í léttum tón við upphaf fundar, þegar allir voru að koma sér fyrir, að boðið væri upp á kleinur. Næst yrði kannski boðið uppá viskí og klaka.