Efling-stéttarfélag lýsir yfir vonbrigðum með athugasemdir SA vegna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hótelþerna þann 8. mars næstkomandi í fréttatilkynningu sem félagið hefur sent á fjölmiðla.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í morgun hefur SA skorað á Eflungu að stöðva atkvæðagreiðslu um verkfall sem koma á til framkvæmda 8. mars næstkomandi, því um 8 þúsund félagsmönnum sé boðið að greiða atkvæði um verkfall þeirra 700 sem verkfallið eigi að ná til. Lögum samkvæmt eigi einungis þeir sem verkfallið nái til að taka ákvörðun um það.

Á þeim forsendum halda Samtök atvinnulífsins því fram að ólöglega sé staðið að atkvæðagreiðslunni sem hófst í morgun , og boða málssókn fyrir Félagsdómi. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir það hins vegar fjarri lagi og fullyrðir hann í fréttatilkyningu að athugasemdirnar séu augljóslega til þess ætlaðar að hindra félagsmenn Eflingar í að nýta lýðræðisleg réttindi sín.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar harmar þar jafnframt afskipti SA og einsakra atvinnurekenda af kosningunum. „Það er með ólíkindum að sjá hagsmunaaðila reyna að stöðva þá miklu upprisu verkafólks sem nú er í gangi,“ sagði Sólveig.

Hún hefur varið morgninum í verkfallskosningabíl Eflingar sem ekið hefur milli hótela. „Það hefur verið magnað og ótrúlegt að fylgjast með undirtektum Eflingarfélaga. Allir eru ólmir að kjósa og mikill hugur í fólk,“ sagði Sólveig.

Viðar áréttaði að allur undirbúningur og framkvæmd kosninganna hefur verið í samræmi við viðeigandi reglur. Þar er um að ræða lög um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 frá 1938, lög Eflingar og Reglugerð ASÍ um leynilega allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarsamtaka.

„Lögmenn okkar og formaður kjörstjórnar hafa að sjálfsögðu yfirfarið þessar reglur mjög vandlega,“ sagði Viðar. Hann sagði Eflingu vísa athugasemdum SA alfarið á bug og að formaður kjörstjórnar Eflingar hafi þegar svarað SA.