Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður Samtaka atvinnulífsins (SA), fór þess á leit  við Viðskiptaráð Íslands í dag að teknar yrðu upp viðræður um sameiningu samtakanna.

Þetta kemur fram á vef SA en þar kemur fram að markmið slíkra breytinga væri að efla samtök atvinnurekenda, auka skilvirkni í rekstri og virkja betur kraft og frumkvæði atvinnurekenda til beinnar þátttöku í endurreisn atvinnulífsins.