Sæbraut breytist í Geirsgötu við gatnamót Lækjargötu. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja leggja veginn í umferðarstokk á þessum kafla þannig að byggingarreiturinn við Hörpu og miðbærinn tengist í stað þess að vera klofinn í sundur með umferðargötu.

Í tillögunni segir: "Verði Sæbraut og Geirsgata lagðar í stokk skapast tækifæri til þess að móta torg og fleira þar sem göturnar liggja nú og þannig má auka umhverfisgæði og skapa fjölbreytilegan og eftirsóknarverðan miðborgarbrag."

Tillagan verður lögð fram á fundir borgarstjórnar á þriðjudaginn.