Sæmundur Sæmundsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Sjóva. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri sviðsins í rúm 5 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu Sjóva til Kauphallarinnar.

Um er að ræða fækkun í framkvæmdastjórn félagsins sem mun í framhaldinu skipa fjóra framkvæmdastjóra, tvær konur og tvo karla ásamt forstjóra. Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, þakkar Sæmundi fyrir gott og farsælt samstarf í tilkynningunni.