Særún Ósk Pálmadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóri Haga hf., en markmið stöðunnar er meðal annars að gera boðleiðir skýrari og markvissari innan Haga og dótturfyrirtækja. Særún hefur reynslu á sviði samskiptaráðgjafar og kemur til Haga frá ráðgjafastofunni Aton.JL, áður Aton, þar sem hún starfaði sem samskiptaráðgjafi síðastliðin þrjú ár.

Á árunum 2018 og 2019 var hún einnig kynningarstjóri tónlistarhátíðarinnar Myrkir músíkdagar. Særún hefur starfað sem sérfræðingur í samskiptum hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Tempo og verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR.

Særún er með M.Sc. gráðu í almannatengslum með áherslu á krísusamskipti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og Háskólanum í Stirling í Skotlandi, sem og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.