Icelandair flutti tæplega 97 þúsund farþega í mars sl., sem er 10% fjölgun á milli ára. Þá hefur farþegum fjölgað um 13% á milli ára fyrstu þrjá mánuði ársins en heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur tæplega 267 þúsund.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í mars var tæp 77% sem er 2% aukning á milli ára í mars. Sætanýtingin fyrstu þrjá mánuði ársins nemur 71% og hefur að sögn félagsins aldrei verið hærri á fyrsta ársfjórðungi.

Enn fækkar farþegum Flugfélags Íslands

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 4% á milli ára í mars þegar félagið flutti tæplega 28 þúsund farþega. Sætanýting félagsins dróst saman um 3,2% á milli ára í mars og var um 69%.

Farþegum Flugfélags Íslands fækkaði um 6% á milli ára í fyrra og hefur fækkað um 4% á milli ára fyrstu tvo mánuði ársins.

Mikil aukning í fraktflugi

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst á milli ára í mars eða um 8%. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári og hefur aukist um 7% á milli ára fyrstu þrjá mánuði þessa árs.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 9% á milli ára í mars. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs nemur 6% á milli ára.

Þá stóð nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar í stað á milli ára í mars en hefur aukist um 1% á milli ára fyrstu þrjá mánuði ársins.