Play flutti 15.223 farþega í september og sætanýting jókst frá fyrri mánuði. Flugfélagið segir að farmiðasala hafi aukist aftur í september eftir lægð í sumar vegna aukinna Covid-smita. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Sætanýting flugfélagsins jókst um sex prósentur á milli mánaða og nam 52,1% samanborið við 46% í ágúst og 41% í júlí. Betri sætanýting er sögð endurspegla aðlögun félagsins á framboði í flugáætlun í september og aukna eftirspurn. Play væntir þess að sætanýting í október verði betri en í síðasta mánuði.

„Félagið merkir augljóslegan aukinn ferðavilja í takt við færri COVID-19 tilfelli á Íslandi og tilslakanir á sóttvarnarreglum. Eftirspurn eftir flugi til Íslands eykst jafnframt í takt við aukinn sýnileika Play á mörkuðum erlendis og tilslakanir á sóttvarnarreglum. Þessi jákvæða þróun teygir sig inn í október og horfur fyrir næstu mánuði eru mjög góðar,“ segir í tilkynningunni.

Flugfélagið segir að vegna jákvæðrar þróunar undanfarið hafi verið bætt Amsterdam við sem nýjum áfangastað í vetraráætlunina. Fyrsta flugið til Amsterdam verður 3.desember með flugi á mánudögum og föstudögum til að byrja með en síðar munu fimmtudagar og sunnudagar bætast við áætlunina frá og með 16. desember. Fleiri nýir áfangastaðir í Evrópu verða kynntir á næstu vikum.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Við höfum verið varfærin í áætlunum okkar út af heimsfaraldrinum en nú þegar við sjáum batamerki í ferðaþjónustunni hér heima í bland við frekari tilslakanir á ferðatakmörkunum þá sjáum við sætanýtingu aukast og við sjáum líka mjög jákvæð teikn á lofti varðandi eftirspurnina almennt. Það er óhætt að segja að við séum bjartsýn og við hlökkum til ársins 2022. Ég er líka virkilega spenntur fyrir því að bjóða nýja flugliða og flugmenn velkomna í teymið okkar og við erum stolt af því að geta skapað öll þessi nýju störf. Það eru mjög spennandi tímar fram undan.“