Níu af hverjum tíu sætum í flugvélum Wow air voru bókuð í marsmánuði. Skúli Mogensen, forstjóri flugfélagsins, segist í samtali við Túrista vera ánægður með útkomuna.

Til samanburðar var sætanýtingin hjá Icelandair 82,7% í mánuðinum og hjá Easyjet var hún 92,6%, sem á þó við um allar flugferðir félagsins en ekki bara til og frá Íslandi.