Sæþór Fannberg héraðsdómslögmaður hefur hafið störf hjá Local lögmönnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmannsstofunni.

Sæþór útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík á árinu 2011. Þar að auki var hann í námsvist við háskólann í Stokkhólmi á árinu 2010. Hann er með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Sæþór starfaði áður sem lögfræðingur hjá Tryggingastofnun.

Sæþór spilaði handknattleik með Víkingi og er nú formaður handknattleiksdeildar félagsins. Hann er í sambúð með Hrönn Bjarnadóttur, viðskipta- og markaðsfræðingi.