Sævar Freyr Þráinsson hefur tekið við af Ara Edwald sem forstjóri 365 miðla. Hann var áður forstjóri Símans en hætti þar í febrúar síðastliðnum og tók við sem aðstoðarforstjóri 365 miðla í maí á þessu ári.

Fram kemur á vef Vísis.is að Ari verður stjórn og nýjum forstjóra til ráðgjafar næstu mánuðina. Hann hefur verið forstjóri 365 miðla í tæp níu ár en hann settist í forstjórastólinn rétt undir lok árs 2005.

Haft er eftir Ingibjörgu S. Pálmadóttur, stjórnarformanni 365 miðla og helsta eiganda fyrirtækisins, að Sævar hafi mikla reynslu og þekkingu á rekstri sem muni nýtast fyrirtækinu á spennandi tímum.