Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, fagnar sérstöku átaksverkefni um hert eftirlit með heimagistingu sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið, og þakkar ráðherra ferðamála fyrir frumkvæði í málinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Samtök ferðaþjónustunnar kveðjast lengi hafa bent á þörfina fyrir stóraukið eftirlit með leyfisskyldri gististarfsemi, enda sé ljóst að umfang ólöglegrar gististarfsemi undir merkjum Airbnb og sambærilegra deilikerfa skekkir samkeppnisumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja.

Að sögn SAF er ótækt að óábyrgir aðilar komist upp með að reka gistiþjónustu í samkeppni við ábyrgan atvinnurekstur án þess að skila sköttum og skyldum, en þannig fara forgörðum um 2 milljarðar króna sem annars gætu nýst til uppbyggingar innviða í ferðaþjónustu.

Brýnt sé að fjármagnið sem lagt er í verkefnið skili sér einnig í eftirlit á ólöglegri gististarfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.

Átaksverkefni um hert eftirlit sé því mikilvægt fyrsta skref í því að koma ólöglegri gististarfsemi upp á yfirborðið.