JCI Ísland stendur fyrir söfnunarátaki til styrktar ABC barnahjálp, sem byrjaði í morgun klukkan 9:00 og gengur út á að hvetja Íslendinga til að gefa aurana sína til góðs málefnis.

Auroracoin er ný íslensk rafmynt sem svipar til Bitcoin. Þann 25. mars síðastliðinn fékk hver og einn Íslendingur 31.8 aur að gjöf frá huldumanninum Baldri Friggjari Óðinssyni og öðrum forsvarsmönnum þessarar nýju myntar. Eyjólfur Árnason  aðstoðarverkefnisstjóri segir að JCI félögum hafi fundist tilvalin hugmynd að hefja söfnun og hvetja alla Íslendinga til að gefa aurana sína til ABC barnahjálp, sem jafnframt er samstarfsaðili að  þessu verkefni.

Allar nánari upplýsingar um söfnunina er að finna á www.auragjof.is , auk leiðbeininga um hvernig skal koma aurunum til ABC barnahjálpar.