Íbúar og aðrir velunnarar Hríseyjar hafa safnað saman þremur milljónum til að stofna hlutfélag um verslun í eyjunni. Júllabúð lokaði í byrjun mars og síðan þá hefur engin verslun verið starfandi í eyjunni. Með upphæðinni sem safnast hefur á að opna verslun á nýjan leik. Þetta kemur fram á vefsíðu Vikudags.

Stofnfundur verður haldinn laugardaginn 9. maí en áfram verður opið fyrir skráningu á hlutafé til 5. maí næstkomandi. „Þótt takmarkinu sé náð sem lagt var upp með finnst okkur full ástæða til að gefa fleirum tækifæri til að vera með. Það mun aðeins styrkja grunninn enn frekar,“ segir á vef Hríseyinga.