Flugfélag Íslands hefur gengið frá samningi við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að bankinn annist sölu á Twin Otter flugvélum félagsins og tengdum rekstri á Akureyri. Forsvarsmenn Saga Capital segja greinilegt að mikill áhugi sé á sölunni meðal flugrekstraraðila og fjárfesta um allt land, sér í lagi á Norðurlandi enda reksturinn að miklu leyti bundinn við Akureyri.

Um tuttugu manns vinna við rekstur Twin Otter vélanna á Akureyri, aðallega flugvirkjar og flugmenn.

Flugfélag Íslands tilkynnti fyrir hálfum mánuði að félagið hygðist skilja rekstur Twin Otter flugvélanna frá öðrum rekstri félagsins og selja þær eignir sem rekstrinum fylgja. Um er að ræða tvær Twin Otter flugvélar og tengda viðhaldsþjónustu á Akureyri, samninga um áætlunarflug frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórshafnar og Grímseyjar og samninga um leiguflug, aðallega á Grænlandi.

Saga Capital verður fulltrúi Flugfélags Íslands gagnvart kaupendum og heldur utan um sölu á þessum hluta rekstrarins.

Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Saga Capital segir ljóst að bæði flugrekstraraðilar og fjárfestar séu áhugasamir um þessa sölu. Margir sjái Akureyri sem ákjósanlega heimahöfn enda sé fyrirsjáanleg mikill uppbygging á Akureyrarflugvelli með fyrirhugaðri lengingu flugbrautarinnar.

Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands segir að það hafi verið eðlilegt að leita ráðgjafar hjá Saga Capital, þeir hafi komið sterkir inn á markaðinn á síðasta ári, séu með mikla þekkingu á viðskiptalífinu og geti boðið góða og öfluga þjónustu.

Twin Otter flugvélarnar eru um margt einstakar flugvélar. Þær taka upp í 19 manns í sæti, geta lent á allt niður í 150 metra langri braut og eru þannig úr garði gerðar að hægt er að setja nánast hvaða lendingarbúnað sem er undir þær. Þannig er til dæmis bæði hægt að setja undir þær skíði til að lenda á snjó eða jökli en einnig stór dekk, svipað og gert er við jeppa, til að lenda á grófum flugbrautum.

Þessi eiginleiki veldur því að vélarnar hafa verið sérstaklega vinsælar í leiguverkefnum á Grænlandi, þar sem þær hafa meðal annars verið notaðar til að lenda með göngumenn á Grænlandsjökli og flytja vistir og farþega fyrir danska herinn og hinar ýmsu vísindastofnanir.